
Þegar rými losnar innréttum við það í samráði við leigutaka svo það henti starfseminni frá fyrsta degi.
Í eignasafninu er skrifstofu-, verslunar- og atvinnuhúsnæði af ýmsum stærðum, í Reykjavík og víðar um land.
Laki sér sjálft um rekstur og viðhald eignanna og bregst hratt við því sem upp kemur.
Laki annast verkefnið frá hönnun til afhendingar í samstarfi við reynda verktaka og hönnuði.
Byggt er með stálgrindartækni þar sem einingar eru byggðar innandyra við bestu mögulegu aðstæður og settar saman á staðnum. Aðferðin skilar hraðri framkvæmd, auknum fyrirsjáanleika og háum gæðastöðlum.
Laki getur átt húsnæðið og leigt það verkkaupa til langs tíma, líkt og gert er með leikskólann í Elliðaárdal sem félagið á og leigir Reykjavíkurborg.