Hjúkrunarheimili á Húsavík

Á Húsavík byggir Laki nýtt hjúkrunarheimili í samstarfi við Nuconic. Húsið er teiknað af HJARK arkitektum og er hluti af uppbyggingu félagsins á húsnæði fyrir opinbera þjónustu um land allt.

HELSTU UPPLÝSINGAR

Hjúkrunarheimilið er rúmlega 4.000 fermetrar að stærð og hýsir 60 ný hjúkrunarrými. Hönnun heimilisins er í höndum HJARK arkitekta undir stjórn Huldu Jónsdóttur. Við hönnun byggingarinnar var lögð áhersla á að búa til skjólrík útisvæði, tryggja heimilislegt umhverfi, góða vinnuaðstöðu starfsfólks og aðstöðu sem styður við vellíðan íbúa.

‍
Byggingin er reist með stálgrindartækni þar sem einingar eru byggðar innandyra við bestu mögulegu aðstæður og settar saman á staðnum. Aðferðin skilar hraðri framkvæmd, auknum fyrirsjáanleika og háum gæðastöðlum í byggingarframkvæmdum. Nuconic sér um byggingu hússins og Lumex um lýsingarhönnun. Vinnuvélar Eyþórs ehf. á Húsavík sjá um jarðvegsframkvæmdir.

Áætluð verklok
Mars 2027
Heildarstærð
4.000 m²
Arkitekt
HJARK
Fjöldi hjúkrunarrýma
60
MYNDASAFN
No items found.