
Leikskólinn er 1.920 fermetrar að stærð, sjö deilda og rúmar 120 börn. Hönnun er í höndum HJARK arkitekta. Á efri hæð eru hálfyfirbyggðar leiksvalir og litríkir stálbitar setja svip á húsið og gefa því hlýlegt yfirbragð.
Leikskólinn er vel staðsettur fyrir austurhluta borgarinnar, með greiða aðkomu fyrir þá sem fara um Ártúnsbrekku og fyrir vaxandi byggð á Höfða og í Bryggjuhverfinu.
Byggingin er reist með stálgrindartækni þar sem einingar eru byggðar innandyra við bestu mögulegu aðstæður og settar saman á staðnum. Aðferðin skilar hraðri framkvæmd, auknum fyrirsjáanleika og háum gæðastöðlum í byggingarframkvæmdum. Nuconic sér um byggingu hússins og Lumex um lýsingarhönnun. Áætluð verklok eru í nóvember 2026.