Copyright © 2026 Laki - All rights reserved.

Suðurlandsbraut 18 er 3.442 fermetra skrifstofu- og verslunarhúsnæði við eina helstu umferðaræð borgarinnar, byggt árið 1973. Húsið var teiknað af arkitektunum Guðmundi Kr. Kristinssyni og Ferdinand Alfreðssyni og er í daglegu tali þekkt sem Esso-húsið, enda voru þar höfuðstöðvar Olíufélagsins. Úr húsinu er gott útsýni í átt að Laugardal, Esju og út á sundin. Húsið skiptist í framhús og bakhús og bílahús fylgir með stæðum á tveimur hæðum. Á lóðinni er 2.400 fermetra byggingarréttur. Hluti hússins er laus til leigu.




